Skilmálar

Pantanir
Reykjavík Posters tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. 
 
Afhendingartími
Afhendingartími er að jafnaði 3-5 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Varan er sótt af kaupanda hjá Reykjavík Posters í Vesturgötu 54a, 101 Reykjavík, miðbjalla. Það er líka hægt að senda vöruna með pósti en þá verður móttakandi að greiða fyrir sendinguna. 
 
Verð
24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Reykjavík Posters sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.  
 
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema við eigi og viðskiptavinur hafi óskað eftir afhendingarmáta sem telja má ódýrastan. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvuskeyti á netfangið reykjavikposter@gmail. com eða senda Reykjavik Posters staðlað uppsagnareyðublað sem er að finna á vef Neytendastofu www.neytendastofa.is (þar sem jafnframt er að finna frekari upplýsingar um skilarétt), en í kjölfarið skal Reykjavik Posters láta viðskiptavini í té kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar. Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.
 
Greiðslur
Það er hægt að greiða með millifærslu, þegar sá valmöguleiki er valinn þá færðu sendan tölvupóst með upplýsingum um reikningsnúmer og kennitölu fyrirtækisins. Pöntun er samþykkt um leið og millifærslan hefur gengið í gegn, ef ekki er greitt innan 3ja daga telst pöntun ógild. Til þess að auðvelda okkur að staðfesta hvort að millifærsla hefur farið í gegn mælum við með því að senda kvittun úr heimbanka á reykjavikposters@gmail.is með pöntunarnúmeri sem skýringu. 
Lög og varnarþing.
Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem skilgreindir eru í lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000. Varnarþing Rebella Filmworks ehf er í Reykjavík.
 
Annað
Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila.